S.O.S er vinnu heiti á forriti sem skrifað er samkvæmt J2EE staðli, þetta forrit keyrir á netþjóni
þ.e notandi þarf aldrei að setja upp hugbúnaðinn á sína vél eða hafa áhyggjur af uppfærslum.
Notandi tekur gagnvirkt próf "S.O.S" á internetinunetinu og skiptir þá engu hvernig tölvu
viðkomandi nemandi er á. Þetta er megin kostur á því að nota hugbúnað sem skrifaður er í J2EE
Til að fá aðgang að prófabankanum þarf að skrá sig inn í kerfið og heldur hugbúnaðurinn utan um
einkunnir sem nemandi fær í prófunum og skráir í gagnagrunn.
Kennarar geta á auðveldan hátt skráð nýjar spurningar og svör við þeim sem síðan fer í gagnabankann
sem stækkar og stækkar. Með þessu móti verður til stór prófabanki sem allir skólar og nemendur
þeirra geta fengið aðgang að.
Kerfið heldur síðan um réttmæti spurninga og svara þ.e hægt er fljótlega að sjá hvort spurning
og eða svarmöguleikar séu réttmætar, ef ekki þá læturkerfið vita og spurningu eða svarmöguleika er
hent út úr gagnagrunn, þannig verður smátt og smátt til verðmætur og góður prófabanki.